Síldarvinnslan segir frétt algerlega ranga

Norðfjarðarhöfn. Mynd úr safni. Norðfjarðarhöfn er ein stærsta fiskihöfn landsins. …
Norðfjarðarhöfn. Mynd úr safni. Norðfjarðarhöfn er ein stærsta fiskihöfn landsins. Hafnarsvæðið skiptist upp í aðalhöfn annars vegar, innst í firðinum, og hins vegar eru bryggjur í miðbæ Neskaupstaðar. mbl.is/Sigurður Aðalsteinsson

Síldarvinnslan hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hafnað er frétt sem birtist í morgun um að Síldarvinnslan hefði óskað eftir leiðbeiningum frá Samherja um hvernig blekkja mætti Grænlendinga til að komast yfir veiðiheimildir og kvóta. „Þessi frétt er algjörlega röng og í reyndinni merkilegt hvernig blaðamaður getur lesið þetta út úr þeim tölvupósti sem vitnað er til,“ segir í tilkynningunni. 

Í tilkynningunni er haft eftir Henrik Leith, stjórnarformanni Polar Seafood á Grænlandi, að hann hafi leitað til Gunnþórs Ingvasonar, forstjóra Síldarvinnslunnar, um upplýsingar„einfaldlega vegna þess að Síldarvinnslan hefur mikla reynslu og þekkingu á uppbyggingu og rekstri vinnslufyrirtækja. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að hægt væri að búa til svona neikvæða frétt um greiðvikni hans í minn garð. Þetta er sorglegt dæmi um óvönduð vinnubrögð fjölmiðla.“

Í samtali forstjóra Síldarvinnslunnar við mbl.is í morgun kom einnig fram að ekki hafi verið ætlunin að blekkja neinn.

Í tilkynningu Síldarvinnslunnar segir enn fremur að fyrirtækið hafi átt í farsælu samstarfi við Grænlendinga frá árinu 2003 við rekstur útgerðarfyrirtækis. Þá segir: „Árið 2012 festi stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Grænlands, Polar Seafood, kaup á meirihlutanum í útgerðarfyrirtækinu sem þá fékk nafnið Polar Pelagic, en Síldarvinnslan á þriðjungshlut í því. Stjórn Polar Seafood hefur alla tíð sinnt öllum samskiptum fyrirtækisins við grænlensk stjórnvöld. Stjórnarformaður Polar Seafood er Henrik Leth en hann hefur lengi verið einn af helstu forystumönnum grænlensks sjávarútvegs.
 
Árið 2014 hafði Henrik Leth samband við Gunnþór Ingvason og tjáði honum að á Grænlandi væri í umræðunni að einhverjir áformuðu að koma upp fiskimjöls- og uppsjávarvinnslu í Ammasalik á austurströnd landsins. Taldi Henrik þessi áform mjög óraunhæf og áleit að þau væru sett fram í þeim tilgangi að ná kvóta hjá grænlenskum stjórnvöldum. Til þess að fá nánari upplýsingar um tæknileg málefni og kostnað við uppbyggingu eins og þessa leitaði hann til Gunnþórs Ingvasonar. Gunnþór vissi að Samherji hefði nýlega látið gera áætlanir um slíka uppbyggingu í Marokkó og einfaldast væri að skoða þær. Sendi hann Samherjamönnum tölvupóst þar sem hann bað um að fá þessar upplýsingar þó þær ættu við um uppbyggingu í Afríku. Þar með var málinu lokið að hans hálfu.“

Síldarvinnslan hf.
Síldarvinnslan hf.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert