Vildi aðstoð við að blekkja Grænlendinga

Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.
Gunnþór Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað. Morgunblaðið/Sigurður Bogi

Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað, óskaði eftir leiðbeiningum frá stjórnendum Samherja varðandi það hvernig blekkja mætti Grænlendinga til að komast yfir veiðiheimildir og velvild. Fréttablaðið greinir frá þessu og vísar í skjöl Wikileaks.

„Sælir félagar. Þannig er mál með vexti að vinir [sic] okkar í Grænlandi, Henrik Leth, var að biðja mig að setja niður fyrir sig hvað þyrfti til í fjárfestingum, veiðum, vinnslu og hafnarmannvirkjum ef menn myndu vera [að] setja upp fiskimjöls og uppsjávarverksmiðju í Ammasalik [á] austurströnd Grænlands,“ útskýrir Gunnþór í tölvuskeyti til Aðalsteins Helgasonar, Jóhannesar Stefánssonar og manns hjá Samherja sem hefur netfangið siggi@samherji.is.

„Hann er ekki að hugsa um að setja neitt upp, heldur eru einhverjir heimamenn í Grænlandi með einhverja með sér í því að reyna ná kvótum og goodwill af stjórnvöldum með því að þykjast vera [að] fara [að] byggja upp á Austur Grænlandi,“ undirstrikar Gunnþór í pósti sínum. „Eigið þið ekki tilbúna einhverja svona punkta þó svo að þeir eigi við um Afríku?“

Samherjamennirnir taka vel í beiðni Gunnþórs. „Það er kannski spurning um að taka frá Marokkó, hvað segirðu um það?“ spyr Jóhannes í svarskeyti og beinir þá spurningunni til áðurnefnds Sigga, segir í frétt Fréttablaðsins en hana er hægt að lesa í heild hér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert