Milljónirnar 29 gengu ekki út

Enginn var með allar tölur réttar í lottóútdrætti kvöldsins og munu milljónirnar 29 sem nú eru í pottinum því bætast við vinning næstu viku.

Einn var hins vegar með annan vinning, sá var með miðann í áskrift og hlýtur 501 þúsund krónur í sinn hlut.

Enginn var með all­ar töl­ur í réttri röð í Jókern­um, en fjór­ir voru með fjórar tölur réttar og hljóta þeir 100.000 krónur hver.

Tveir miðanna voru í áskrift, en einn miði var keyptur hjá N1 á Sauðárkróki og annar hjá Vídeómarkaðinum í Hamraborg í Kópavogi.

Vinningstölur kvöldsins: 16,20, 21, 22, 36

Bónustala: 15

Jókertölur: 1, 0, 6, 0, 3

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert