Sex gistu fangaklefa í nótt

Rúmlega fjörutíu mál komu á borð lögreglunnar frá klukkan 19 …
Rúmlega fjörutíu mál komu á borð lögreglunnar frá klukkan 19 í gærkvöldi til klukkan 5 í morgun. mbl.is/Eggert

Sex gistu fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna ýmissa brota, en rúmlega fjörutíu mál komu á borð lögreglunnar frá klukkan 19 í gærkvöldi til klukkan 5 í morgun. Meðal þeirra voru þjófnaður úr verslun, akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna og tilraunir til innbrota.

Afskipti voru höfð af aðila í hverfi 108, sem er Smáíbúða-, Fossvogs- og Bústaðahverfi, vegna þjófnaðar úr verslun í hverfinu og að auki fundust fíkniefni á honum. Tilkynnt var um aðila sem reyndu að spenna upp glugga í hverfi 101 og í sama hverfi var aðili handtekinn, sem ekki gat gert grein fyrir dvöl sinni hér á landi og var að auki með fíkniefni í fórum sínum. Sá var vistaður í fangaklefa.

Sex voru handteknir vegna gruns um að hafa ekið undir áhrifum áfengis eða fíkniefna og þá var útlendingur handtekinn í Kópavogi vegna gruns um ólöglega dvöl hér á landi. Var sá vistaður í fangaklefa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert