Kýldi og sparkaði í konu

mbl.is/Eggert

Um níuleytið í morgun var tilkynnt um aðila sem hafði veist að konu í austurborg Reykjavíkur. Hann mun hafa kýlt og sparkað í hana.

Ekki er vitað hvað honum gekk til og er málið í rannsókn, að því er kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni gat ekki gefið frekari upplýsingar um málið að svo stöddu í samtali við mbl.is.

Einnig var tilkynnt um umferðarslys á Reykjanesbraut í morgun. Það var minni háttar á milli fimm bíla. Engin slys urðu á fólki. Nokkrar tilkynningar um innbrot víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu hafa einnig borist lögreglunni í morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert