Samtök iðnaðarins: „RÚV fari að lögum“

Samtök iðnaðarins telja fagnaðarefni að Ríkisendurskoðun taki undir sjónarmið sín …
Samtök iðnaðarins telja fagnaðarefni að Ríkisendurskoðun taki undir sjónarmið sín hvað varðar samkeppnisrekstur RÚV. mbl.is/Eggert

Samtök iðnaðarins segja að skýrsla Ríkisendurskoðunar staðfesti sjónarmið samtakanna, en fram kemur fram í skýrslunni að RÚV sé skylt að stofna dótturfélag um samkeppnisrekstur sinn. Samtök iðnaðarins segjast fagna áherslum Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra til málsins, en hún hefur þegar hvatt RÚV til að hraða vinnu við að færa samkeppnisrekstur í dótturfélög.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá SI. Þar segir einnig að stjórnarformaður RÚV hafi hafnað fundi með samtökunum er þau vöktu athygli á því að skipulag félagsins væri í andstöðu við lög af þessum sökum, fyrir ári síðan.

„Fyrir rúmu ári síðan sendu Samtök iðnaðarins stjórn RÚV bréf þess efnis að RÚV beri að stofna og reka dótturfélög utan um samkeppnisrekstur sinn. Samtökin vöktu athygli stjórnar RÚV á því að núverandi skipulag félagsins væri í beinni andstöðu við lagaákvæði og að það væri skylda stjórnar RÚV, að viðlagðri ábyrgð, að sjá til þess að skipulag og starfsemi félagsins væri jafnan í réttu og góðu horfi. Þá óskuðu Samtök iðnaðarins eftir að stjórn RÚV kæmi starfseminni þegar í stað í lögmætt horf með því að setja allan samkeppnisrekstur í dótturfélag. Hafnaði stjórnarformaður RÚV ósk um fund,“ segir í tilkynningunni frá SI, sem telja fagnaðarefni að Ríkisendurskoðun taki undir sjónarmið sín í málinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert