Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara sem felldi niður mál á hendur lögreglumönnum sem voru til rannsóknar vegna afskipta lögreglu af ungri konu sem dó á Landspítala síðar sama kvöld í apríl.
Greint er frá málinu á vef RÚV.
Málið kom inn á borð héraðssaksóknara nokkrum dögum eftir andlátið en foreldrar konunnar, sem er fædd árið 1994, voru ósáttir við meðferð lögreglu á dóttur þeirra.
Konan var í samkvæmi þar sem mikið var um eiturlyf og var hún í miklu ójafnvægi þegar lögregla var kölluð til. Eftir að lögreglan hafði afskipti af henni fór hún í hjartastopp og hófust endurlífgunartilraunir. Konan var flutt á Landspítalann og lést þar þriðjudagsmorguninn 9. apríl.