Vægt frost fyrir norðan

mbl.is/​Hari

Austlæg átt, allhvöss við suðurströndina fram eftir degi og aftur á morgun, annars hægari vindur. Skýjað í dag og dálítil rigning suðaustanlands, en bjart veður og víða vægt frost um landið norðanvert. 

Rigning á morgun, þó síst á Norðausturlandi og hiti yfirleitt 0 til 7 stig. Á föstudag rignir væntanlega áfram suðvestan- og vestanlands, en styttir upp í öðrum landshlutum, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Austlæg átt, 13-18 m/s með suðurströndinni fram yfir hádegi, annars mun hægari. Dálítil rigning SA-til, en bjart veður norðan heiða. Hiti 1 til 7 stig, en víða 0 til 5 stiga frost á N- og A-landi.
Austan 8-18 á morgun, hvassast syðst. Rigning, einkum um landið S-vert, en úrkomulítið á N- og NA-landi.

Á fimmtudag:
Austan og suðaustan 8-13 m/s, en 13-18 syðst. Þurrt að kalla á NA-landi, annars rigning. Hiti 0 til 7 stig.

Á föstudag:
Suðaustan 5-10 og dálítil væta, en skýjað með köflum og þurrt N-lands. Hiti breytist lítið.

Á laugardag:
Austan 5-13 og rigning með köflum S-lands, hiti 2 til 7 stig. Hægari og þurrt N-til, hiti nálægt frostmarki.

Á sunnudag:
Austan- og norðaustanátt, skýjað og rigning SA- og A-lands. Hiti 1 til 6 stig, en vægt frost á N-landi.

Á mánudag og þriðjudag:
Norðaustanátt og rigning eða slydda með köflum, en þurrt að kalla SV- og V-lands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert