Áunnin réttindi félagsmanna verði virt

Húsfyllir var á sameiginlegum baráttufundi ellefu aðildarfélaga BHM í morgun.
Húsfyllir var á sameiginlegum baráttufundi ellefu aðildarfélaga BHM í morgun. Ljósmynd/Aðsend

Húsfyllir var á sameiginlegum baráttufundi ellefu aðildarfélaga BHM í morgun, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Á fundinum var samþykkt ályktun þar sem fullum stuðningi er lýst við kröfur samninganefnda félaganna í yfirstandandi kjaraviðræðum við ríkið.

Eru viðsemjendur hvattir til að virða áunnin réttindi félagsmanna og þess krafist að í yfirstandandi kjaraviðræðum verði „raunveruleg skref tekin til styttingar vinnuvikunnar, án þess að kjör og réttindi verði skert.“

Félögin ellefu eru: Dýralæknafélag Íslands, Félag geislafræðinga, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félag íslenskra hljómlistarmanna, Félag lífeindafræðinga, Félagsráðgjafafélag Íslands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Ljósmæðrafélag Íslands, Sálfræðingafélag Íslands og Þroskaþjálfafélag Íslands

Á fundinum fóru forsvarsmenn félaganna yfir stöðuna í viðræðunum við ríkið og kynntu helstu sjónarmið og áherslur. Kjarasamningar félaganna við ríki og sveitarfélög hafa nú verið lausir í tæplega átta mánuði eða frá 1. apríl og hafa viðræður, enn sem komið er, skilað litlum árangri.

Samþykkti fundurinn einróma ályktun um að fullum stuðningi sé lýst yfir við kröfur og áherslur samninganefnda félaganna. Seinagangur í viðræðunum var enn fremur harmaður og kjararýrnun hafnað. Þá voru viðsemjendur hvattir til að virða áunnin réttindi félagsmanna.

„Krafist er 500 þúsund króna lágmarkslauna fyrir háskólamenntaða. Óhóflegt álag á starfsfólk innan almannaþjónustu á vegum hins opinbera er viðvarandi og þekkt að slíkt er heilsuspillandi. Fundurinn krefst þess að viðsemjendur taki raunveruleg skref til styttingar vinnuvikunnar án þess að skerða kjör og réttind,“ segir í ályktuninni. 

Forsvarsmenn félaganna fóru yfir stöðuna í viðræðunum við ríkið og …
Forsvarsmenn félaganna fóru yfir stöðuna í viðræðunum við ríkið og kynntu helstu sjónarmið og áherslur. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert