3,5% atvinnuleysi á þriðja ársfjórðungi

Að meðaltali voru 7.200 manns atvinnulausir eða um 3,5%
Að meðaltali voru 7.200 manns atvinnulausir eða um 3,5% mbl.is/Eggert Jóhannesson

Atvinnuþátttaka fólks á aldrinum 16-74 ára á þriðja ársfjórðungi þessa árs reyndist vera 80,8%, eða að meðaltali um 208.800 manns. Þar af töldust að meðaltali 7.200 manns vera atvinnulausir eða um 3,5%, að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.

Á sama tíma voru um 4.500 störf laus á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt starfaskráningu Hagstofunnar eða um 1,9% starfa.

Atvinnuleysi jókst frá þriðja ársfjórðungi 2018 um 1,3 prósentustig og minnkaði hlutfall starfandi af mannfjölda um 2,6 prósentustig.

Um 49.600 manns töldust vera utan vinnumarkaðar á þriðja ársfjórðungi 2019 og er það fjölgun um 5.500 manns.

Á þriðja ársfjórðungi 2019 voru að jafnaði 162.600 manns á aldrinum 16-74 ára við vinnu í hverri viku og var meðalheildarfjöldi vinnustunda þeirra 40,8 klukkustundir. Þeir sem voru í fullu starfi unnu ívið meira, eða að jafnaði um 45,2 stundir á viku, en heildarfjöldi vinnustunda í hlutastarfi var að jafnaði um 24,5 klukkustundir á viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert