Sveitarstjóra Tálknafjarðar sagt upp

Bryndís Sigurðardóttir.
Bryndís Sigurðardóttir. Ljósmynd/Aðsend

Sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps hefur sagt Bryndísi Sigurðardóttur upp störfum sem sveitarstjóra en greint er frá þessu í tilkynningu á vef sveitarfélagsins.

Þar segir að ákvörðun hafi verið tekin um að leiðir þeirra liggi ekki lengur saman.

Dagurinn í dag var síðasti dagur Bryndísar í starfi og var henni þakkað fyrir vel unnin störf og óskað velfarnaðar í framtíðinni.

Bryndís er annar sveitarstjórinn sem sagt er upp störfum í nóvember en Gunnlaugi A. Júlíussyni var sagt upp störfum sem sveitarstjóra Borgarbyggðar í síðustu viku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert