Hár styrkur köfnunarefnisdíoxíðs

Bílar á ferðinni í Reykjavík.
Bílar á ferðinni í Reykjavík. mbl.is/​Hari

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) hefur verið hár Reykjavík í dag samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg. Styrkur efnisins var einnig hár í gær.

Klukkan 13 var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 141,5 míkrógrömm á rúmmetra. Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er mest á morgnanna og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur eru á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg. Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því líkur á að þetta ástand verði viðvarandi.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra. 

Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þeir sem eru viðkvæmir fyrir í öndunarfærum, og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. Köfnunarefnisdíoxíð veldur ertingu í lungum og öndunarvegi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert