Páfagaukur tekinn af eiganda vegna vanrækslu

MAST fjarlægði páfagauk af eigandanum vegna vanrækslu. Mynd úr safni.
MAST fjarlægði páfagauk af eigandanum vegna vanrækslu. Mynd úr safni. AFP

Matvælastofnun hefur tekið páfagauk af eiganda á Norðurlandi vegna vanrækslu. Við eftirlit fundust tveir mjög horaðir fuglar í búri, þar af annar dauður. Ástand fuglanna mátti rekja til vanfóðrunar og vatnsleysis og var vörslusvipting framkvæmd tafarlaust. Þetta kemur fram í tilkynningu frá MAST.

Fram kemur að bannað sé að beita gæludýr illri meðferð og er ekki heimilt að skilja búrfugla lengur eftir án eftirlits en í einn sólarhring. Gæta skal þess að gæludýr sé í eðlilegum holdum og dauð dýr skal tafarlaust fjarlægja frá lifandi dýrum.

Verið er að leita að nýju heimili fyrir páfagaukinn og er málið áfram til meðferðar hjá Matvælastofnun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert