Styrkja starfsemi Aflsins

Aflið var stofnað árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta …
Aflið var stofnað árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta og Jafnréttisstofu. mbl.is/RAX

Aflið á Akureyri, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi, fær átján milljóna króna framlag til að standa straum af starfsemi sinni, samkvæmt samningi sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, og Sigurbjörg Harðardóttir, verkefnisstjóri Aflsins, undirrituðu um síðustu helgi. Þetta kemur fram á vef ráðuneytisins.

Samningurinn byggir á samþykkt fjárlaganefndar Alþingis og gildir til 31. desember 2020. Meginmarkmið samningsins er að styrkja Aflið til að standa straum af kostnaði starfseminnar, en hún felst meðal annars í ráðgjöf og stuðningi við þolendur kynferðis- og heimilisofbeldis, forvarnafræðslu, faglegri ráðgjöf, handleiðslu ráðgjafa og þróunarstarfi.

Aflið var stofnað árið 2002 í framhaldi af tilraunastarfsemi Stígamóta og Jafnréttisstofu. Undanfarin ár hafa samtökin verið með þjónustusamning við Akureyrarbæ og átt í samvinnu við bæjaryfirvöld sem á móti hafa veitt félaginu afnot af húsnæði í Aðalstræti 14.

„Mikill fjöldi fólks sækist eftir þjónustu Aflsins á ári hverju. Það er sorgleg staðreynd en jafn mikilvægt að tryggja að þolendur geti sótt stuðning og ráðgjöf við hæfi. Sömuleiðis að þeir þurfi ekki að fara um langan veg til að fá þjónustu. Samningurinn tryggir það,“ sagði Ásmundur Einar við undirritunina en það er sama fjárhæð og Aflið fékk fyrir ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert