„Þurfum meira gagnsæi og minni trúnað“

Tilefni ræðu Björns Leví var meintur leki úr umhverfis- og …
Tilefni ræðu Björns Leví var meintur leki úr umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, sem tekinn var fyrir á fundi nefndarinnar í morgun. mbl.is/Kristinn Magnússon

Þingmaður Pírata segir að fátt eða ekkert eigi að vera bundið trúnaði í störfum þingsins vegna þess fyrir hverja það vinnur. 

„Fólk sem við vinnum fyrir, fólk sem við skoðum gögn og rök fyrir, fólk sem við tökum ákvarðanir fyrir. Fólkið hérna fyrir utan Alþingi á að fá að sjá þau gögn sem við byggjum ákvarðanir okkar á nema þau varði þjóðaröryggi, friðhelgi einstaklinga eða álíka,“ sagði Björn Leví Gunnarsson í ræðu sinni um störf þingsins á Alþingi í dag.

Uppi fótur og fit í nefnd vegna meints leka

Tilefni ræðu Björns Leví var meintur leki úr umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, sem tekinn var fyrir á fundi nefndarinnar í morgun. „Í morgun varð uppi fótur og fit í umhverfis- og samgöngunefnd út af meintum leka úr nefndinni á skýrslu sem nefndin fékk kynningu á í síðustu viku. Fram kom í nefndinni að fjölmiðill hefði fjallað nákvæmlega um efni skýrslunnar þrátt fyrir að ekki væri búið að skila skýrslunni til ráðherra,“ sagði Björn Leví, og vísar þar líklega til skýrslu starfshóps undir stjórn Eyjólfs Árna Rafnssonar, þar sem útfærðar eru hugmyndir um flugvallakosti á suðvesturhorni landsins, og fjallað var ítarlega um í Speglinum á RÚV.

Björn Leví segir ásakanir hafa flogið fram og til baka, en þegar skýrslan hafi verið kynnt hafi verið beðið um trúnað. Þegar betur hafi verið að gáð hefði hins vegar komið í ljós að drög að skýrslunni hefðu farið víða undanfarinn mánuð.

Nefndarfundir eigi að jafnaði að vera opnir

Það sem vakti athygli mína í þessu máli er hins vegar annað, þ.e. hvaða væntingar fólk hefur um trúnað í störfum þingsins, hvaða væntingar einstakir fulltrúar almennings hafa um trúnað annarra fulltrúa almennings um störf sín og þeirra.

Sagði Björn Leví að á Alþingi þyrfti meira gagnsæi og minni trúnað, sem skapi umhverfi leyndarhyggju og spillingar, og að nefndarfundir Alþingis ættu að jafnaði að vera opnir.

Rökin á móti því eru að þá þori fólk ekki að segja hreinskilnislega frá. Það eru rök sem komu fram á fundi nefndarinnar í morgun. En skilur fólk ekki hvaðan sá ótti kemur? Við þurfum nefnilega að tækla orsökina að því, ekki að setja trúnaðarplástur á til að vernda ofbeldið. Fólk á ekki að þurfa að hika við að segja satt og rétt frá fyrir nefndum Alþingis.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert