Desemberuppbót atvinnuleitenda rúmar 80.000 krónur

Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óskert desemberuppbót atvinnuleitenda er 83.916 krónur. Þetta kemur fram í reglugerð sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur sett. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Rétt á fullri desemberuppbót eiga þeir atvinnuleitendur sem hafa verið að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins, hafa verið skráðir án atvinnu hjá Vinnumálastofnun í samtals tíu mánuði eða lengur á árinu 2019 og hafa staðfest atvinnuleit á tímabilinu 20. nóvember til 3. desember 2019. 

Greiðsla desemberuppbótar til þeirra sem eiga ekki fullan bótarétt reiknast í hlutfalli við rétt þeirra til atvinnuleysisbóta á árinu og fjölda mánaða sem viðkomandi hefur fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Uppbótin verður þó aldrei lægri en sem nemur 20.979 krónum.

Uppbót vegna barns eða barna tekur engum skerðingum, heldur nemur í öllum tilvikum fjórum prósentum af óskertri desemberuppbót eða 3.356 krónum fyrir hvert barn.

Desemberuppbót atvinnuleitenda verður greidd út eigi síðar en 15. desember næstkomandi, að því er segir í frétt á vef Stjórnarráðsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert