Al Jazeera birtir umfjöllun sína um Namibíu

Katarski fjölmiðillinn Al Jazeera hefur birt umfjöllun sína um Samherja …
Katarski fjölmiðillinn Al Jazeera hefur birt umfjöllun sína um Samherja og kvótabrask í Namibíu. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Katarski fjölmiðillinn Al Jazeera hefur birt umfjöllun sína um Samherja og kvótabrask í Namibíu. Um er að ræða 51 mínútu langan þátt sem nálgast má á YouTube.

Í þættinum má m.a. fylgjast með rannsóknarblaðamanni Al Jazeera á fundi með háttsettum embættismönnum í Namibíu, þar sem hann þykist vera kínverskur fjárfestir sem vill kaupa fiskveiðikvóta. Þar krefst Bernhard Esau, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, 200 þúsund dala framlags frá kínverska fjárfestinum til handa Swapo flokknum vegna viðskiptanna.

Telur að fyrir honum hafi verið eitrað

Þá er einnig rætt við Jóhannes Stefánsson, fyrrverandi verkefnastjóra Samherja í Namibíu. Í viðtali við Al Jazeera segist Jóhannes gruna að fyrir honum hafi verið eitrað eftir starfslok hans hjá Samherja 2016.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert