Katrín og Guðlaugur Þór á NATO-fundi

AFP

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sækja fund leiðtoga Atlantshafsbandalagsins í Lundúnum sem hefst í dag og stendur þar til á morgun, miðvikudaginn 4. desember.

Leiðtogafundurinn er haldinn í tilefni af sjötíu ára afmælisári Atlantshafsbandalagsins. Meginefni fundarins eru breytt öryggisumhverfi, horfur í afvopnunarmálum, aðgerðir gegn hryðjuverkum, fjárframlög til bandalagsins og samskiptin við Rússland.

Forsætisráðherra mun auk þátttöku í fundinum eiga tvíhliða fundi með Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, og António Costa, forsætisráðherra Portúgals. Þá flytur forsætisráðherra ræðu í dag um Ísland og velsældarhagkerfið í Chatham House, sem er ein virtasta hugveita heims á sviði alþjóðamála. Síðdegis sækir forsætisráðherra móttöku í Buckingham-höll í boði Bretadrottningar og kvöldverð í Downingstræti 10 í boði breska forsætisráðherrans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert