Veiðimenn varaðir við afrískri svínapest

„Pestin er í hraðri útbreiðslu og mikil ógn stafar af …
„Pestin er í hraðri útbreiðslu og mikil ógn stafar af henni fyrir svínarækt í heiminum. Smit getur borist með matvælum, fatnaði og ýmsum tækjum og tólum,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun. AFP

Matvælastofnun hefur sent frá sér viðvörun til veiðimanna sem fara til Evrópu eða annarra heimshluta á villisvínaveiða og segir að veiðimenn þurfi að gæta ýtrustu smitvarna til að forðast að bera afríska svínapest á milli land.

„Pestin er í hraðri útbreiðslu og mikil ógn stafar af henni fyrir svínarækt í heiminum. Smit getur borist með matvælum, fatnaði og ýmsum tækjum og tólum,“ segir í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Veiran sem veldur pestinni getur meðal annars borist með sýktum svínum og sæði, hráu kjöti af sýktum dýrum, farartækjum, búnaði, fatnaði og fleiru. Veiðimenn eru í hópi þeirra sem þurfa að gæta sín sérstaklega á að dreifa ekki veirunni, en svínapestin er bráðsmitandi drepsótt í svínum og hefur dreifst með villtum svínum um Asíu, Afríku og Evrópu.

Ekki er til nein meðhöndlun við sjúkdómnum og ekki er hægt að verjast honum með bólusetningum. Veiran sem veldur sjúkdómnum er ekki hættuleg fyrir fólk eða önnur dýr en veldur svínum þjáningum og dauða. Tjón fyrir landbúnað þar sem sjúkdómurinn kemur upp er gífurlegt,“ segir Matvælastofnun, sem lætur fylgja tilmæli til veiðimanna og svínabænda um hvernig hægt sé að draga úr smithættu.

Tilmæli til þeirra sem fara á villisvínaveiðar eru:

  • Kynnið ykkur vel þær smitvarnareglur sem gilda í veiðilandinu.

  • Þrífið og sótthreinsið tæki og skó áður en veiðilandið er yfirgefið.

  • Þvoið notaðan fatnað í veiðilandinu. Sé það ekki mögulegt skal setja hann í poka og þvo í þvottavél án tafar þegar heim er komið eða fara með í hreinsun.

  • Farið ekki á svínabú að nauðsynjalausu, hvorki innanlands né erlendis.

  • Kynnið ykkur vel þær reglur sem gilda um innflutning á kjöti og veiðiminjar. Þær má finna á heimasíðu Matvælastofnunar, www.mast.is.

Tilmæli til svínabænda eru:

  • Hafið stranga stjórn á aðgangi og umgangi gesta og starfsfólks á búinu.

  • Fóðrið ekki svín með matarúrgangi.

  • Þrífið og sótthreinsið öll tæki og tól sem farið er með inn á búið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert