Skattrannsóknarstjóri fái ákæruvald

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar.
Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Oddný G. Harðardóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um breytingu á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins í þá veru að embættinu verði veitt ákæruvald og heimild til saksóknar í þeim málum sem það rannsakar.

Lagt er til að Alþingi feli fjármála- og efnahagsráðherra að skipa starfshóp sem vinni drög að lagafrumvarpi sem kveði á um breytingu á embætti skattrannsóknarstjóra ríkisins í þá veru, að því er segir í tilkynningu frá þingflokki Samfylkingarinnar.  

„Tvíverknaður í meðferð á skatta- og efnahagsbrotum er tímafrekur, kostnaðarsamur, til ama fyrir suma sakborninga og getur orðið til þess að mál fyrnast eins og dæmin sanna.  Fyrirkomulagið sem er við lýði hér á landi er seinvirkt og kostnaðarsamt og hvorki hinu opinbera né meintum sakborningum í hag,“ segir í tilkynningunni.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri.
Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri. mbl.is/​Hari

„Með löngum málsmeðferðartíma vex auk þess hættan á að réttarspjöll verði sem leiði til mildari dóma en ella eða jafnvel sýknu eins og dæmi eru um. Ef skattrannsóknarstjóri fengi ákæruvald gengju málin greiðlegar fyrir sig. Þetta hefur verið lagt til í mörgum greiningum, skýrslum og þingmálum síðasta aldarfjórðung en ekkert hefur breyst í þessum efnum.“

Fram kemur að verkefnisstjórn um breytingar og umbætur á skattkerfinu hafi lagt til árið 2016 að rannsóknarmál verði eingöngu til meðferðar hjá skattrannsóknarstjóra sem fari með ákæruvald. Einnig er bent á skýrslu fjármálaaðgerðahópsins FATF og áhættumat ríkislögreglustjóra um að skattalagabrot séu ein helstu frumbrot peningaþvættis. Rannsókn slíkra brota er samkvæmt lögum á hendi héraðssaksóknara.

„Flutningsmenn telja að verði tvíverknaður við rannsóknir sakamála aflagður muni það koma í veg fyrir óþarfa fyrirhöfn og kostnað fyrir hið opinbera og óþarfa íþyngingu fyrir sakborninga. Líta megi til reynslu af rannsókn stórra flókinna mála sem nýlega hafa verið og eru á borðum embættanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert