„Umtalsvert tjón“ á landfyllingum í Straumsvík

Talið er að allt að 350 rúmmetrar af fyllingarefni og …
Talið er að allt að 350 rúmmetrar af fyllingarefni og stórgrýti hafi sópast burt og sjór hefur náð að éta sig langt inn undir þekjuna við sunnanverða bryggjuna. Ljósmynd/Hafnarfjarðarhafnir

Umtalsvert tjón varð á grjótgarði og landfyllingum við Austurbakka í Straumsvík í óveðrinu sem gekk yfir höfuðborgarsvæðið í gærkvöld og nótt. Frá þessu er greint á vef Hafnarfjarðarhafna.

„Talið er að allt að 350 rúmmetrar af fyllingarefni og stórgrýti hafi sópast burt og sjór hefur náð að éta sig langt inn undir þekjuna við sunnanverða bryggjuna. Þá hefur sópast upp möl og grjót um bryggjusvæðið og inn á nærliggjandi gámasvæði. Ljóst er að gríðarleg átök hafa verið í sjógangi þarna en samkvæmt vindmælingum sló upp í 35 metra vindhraða þegar mest gekk á,“ segir á vef Hafnarfjarðarhafna.

Óhagstæðasta vindáttin fyrir Straumsvík

Þar segir einnig að stöðugt álag hafi verið á hafnarsvæðið við Austurbakka í ríflega hálfan sólarhring af NNV-roki, sem sé sú vindátt sem verst sé við að eiga í Straumsvík.

Starfsmenn Hafnarfjarðarhafnar og ráðgjafar hafa verið að taka út tjónið í morgun ásamt fulltrúum frá Náttúruhamfaratryggingum Íslands. Undirbúningur er þegar hafinn að lagfæringum til að tryggja örugga umferð um þennan hluta hafnarsvæðisins í Straumsvík.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert