Myglusveppaeitur fannst í hnetum á markaði

Þessum þremur tegundum ættu neytendur að skila inn.
Þessum þremur tegundum ættu neytendur að skila inn. Ljósmynd/samsett

Matvælastofnun varar við neyslu á þremur vörutegundum af hnetum frá framleiðandanum REMA 1000 vegna þess að myglusveppaeitrið Aflatoxin mældist yfir mörkum.

Upplýsingar bárust MAST í gegnum RASFF, hraðviðvörunarkerfi Evrópu um hættuleg matvæli á markaði. Innflytjandi vörunnar á Íslandi, SUPER1, hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur innkallað vörurnar af markaði. Þetta kemur fram í tilkynningu. 

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vörurnar sem innköllunin einskorðast við: 

  • Vöruheiti: Rema 1000 Nødder Salt & Sødt
  • Nettómagn: 165 g
  • Lotunúmer: 96174
  • Best fyrir: 30/08/2020
  • Vörumerki: Rema 1000
  • Vöruheiti: Rema 1000 Nødder Salt & Stærk
  • Nettómagn: 165 g
  • Lotunúmer: 96087
  • Best fyrir: 28/08/2020
  • Vörumerki: Rema 1000
  • Vöruheiti: Rema 1000 Saltede Peanuts
  • Nettómagn: 250 g
  • Lotunúmer: 95893, 95924, 95929, 95927
  • Best fyrir: 21/08/2020
  • Dreifing og innflutningur: Super1


Neytendur sem keypt hafa vörurnar með best fyrir dagsetningum og lotunúmerum sem kom fram hér að ofan ættu að farga vörunni eða skila vörunni í verslun SUPER1 við Hallveigarstíg gegn fullri endurgreiðslu. 

Nánari upplýsingar má nálgast hjá framkvæmdastjóra SUPER1, Sigurði Pálma Sigurbjörnssyni: siggip@super1.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert