Samhæfingarstöð virkjuð vegna rútuslyss

Búið er að flytja alla farþegana á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á …
Búið er að flytja alla farþegana á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi og í fjöldahjálparstöð Rauða krossins. mbl.is/Jón Sigurðsson

Þyrla Landhelgisgæslunnar hefur verið kölluð út vegna umferðarslyss sem varð við þjóðveg eitt skammt utan við Blönduós fyrir stundu. Hópbifreið fór út af veginum. Þá hefur samhæfingarstöðin í Skógarhlíð verið virkjuð vegna slyssins.

Allir viðbragðsaðilar á svæðinu voru boðaðir á slysstað. Á fimmta tug var um borð í rútunni.

Slysið varð á Norðurlandsvegi skammt frá bænum Öxl sunnan við …
Slysið varð á Norðurlandsvegi skammt frá bænum Öxl sunnan við Blönduós. Kort/mbl.is

Tvær rútur voru í samfloti og mun önnur þeirra hafa oltið. Í rútunum tveimur voru háskólanemar á leið til Akureyrar í skíðaferð.

Uppfært kl. 18:30: Búið er að flytja alla farþegana á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á Blönduósi og í fjöldahjálparstöð Rauða krossins. Þá verða einhverjir fluttir með þyrlunni til Reykjavíkur. Þjóðvegur eitt verður áfram lokaður.

Uppfært kl. 18:55: Þyrla Landhelgisgæslunnar er lent á Blönduósi og er nú unnið að bráðaflokkun á þeim sem slösuðust. Eins og staðan er lítur ekki út fyrir að neinir hinna slösuðu séu í lífshættu. 

Uppfært kl. 19:20: Búið er að opna þjóðveg eitt, en rannsókn lögreglu heldur áfram á vettvangi og eru ökumenn beðnir að gæta ýtrustu varúðar. Mikil hálka er á akbraut og mjög hvasst.

Fréttin verður uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert