Samþykktu tillögu um vinnustöðvun

Frá fundi samninganefndarinnar í dag 10. janúar.
Frá fundi samninganefndarinnar í dag 10. janúar. Ljósmynd/Efling

Samninganefnd Eflingar gagnvart Reykjavíkurborg hefur samþykkt tillögu um vinnustöðvun sem áformað er að hefjist í febrúar. Nú þurfa félagsmenn að samþykkja tillöguna og er undirbúningur hafinn á skrifstofum Eflingar fyrir atkvæðagreiðslu. 

Tillagan kveður á um hálfa og heila verkfallsdaga með stigvaxandi þéttleika fyrri hluta febrúarmánaðar og ótímabundið verkfall frá mánudeginum 17. febrúar. 

Ákvörðun um að leggja fram tillögu um verkfallsboðun var tekin að loknum samningafundi hjá ríkissáttarsemjara í dag, en viðræður munu halda áfram samhliða undirbúningi verkfallsaðgerða. 

„Reykjavíkurborg hefur enga viðleitni sýnt til að koma til móts við vanda láglaunafólksins sem heldur uppi grunnþjónustu borgarinnar eða til að standa við eigin fagurgala um borgina sem vinnustað jöfnuðar. Reykjavíkurborg hefur sýnt starfsfólki sínu á lægstu laununum vanvirðingu í þessum viðræðum, með framkomu sinni, töfum og sinnuleysi,“ er haft eftir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formanni Eflingar, í tilkynningu stéttarfélagsins. 

Rúmlega 1.800 starfsmenn Reykjavíkurborgar starfa undir kjarasamningi Eflingar, en þar af eru yfir 1.000 starfsmenn sem starfa á leikskólum, 710 í umönnunarstörfum á velferðarsviði og um 140 í störfum á umhverfis- og skipulagssviði. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert