Flóðin köstuðust yfir varnargarðinn

Snjóflóðin féllu seint á þriðjudagskvöld.
Snjóflóðin féllu seint á þriðjudagskvöld. Kort/mbl.is

Snjóflóðin sem féllu á þriðjudagskvöldið á Flateyri eru með allra stærstu snjóflóðum sem fallið hafa á varnargarða í heiminum. Sérfræðingar hjá Veðurstofu Íslands og snjóathugunarmenn hafa í gær og dag unnið við mælingar á flóðunum.

Fram kemur á vef Veðurstofunnar að flóðin flæddu yfir varnargarðinn ofan Flateyrar á löngum köflum. Mikinn flóðsnjó er að finna milli garðanna ofan þvergarðsins sem myndar tengingu á milli þeirra skammt ofan byggðarinnar.

Horft niður með vestari leiðigarðinum yfir farveg snjóflóðsins úr Innra-Bæjargili …
Horft niður með vestari leiðigarðinum yfir farveg snjóflóðsins úr Innra-Bæjargili sem rann út í sjó vestan Flateyrar og að hluta yfir garðinn og á húsið að Ólafstúni 14. Óhreyfður snjór á garðhliðinni sýnir hvar flóðið byrjaði að flæða yfir garðinn en þar fyrir neðan hefur snjór sópast af garðinum og gróður hreinsast burt. Ljósmynd/Óliver Hilmarsson

Flóðin virðast hafa kastast yfir garðana á talsverðri ferð vegna þess að ofarlega á innri hlið varnargarðanna er óhreyfður snjór sem flóðin hafa ekki sópað með sér en neðar hafa þau streymt með jörðu og brotið gróður og eyðilagt skilti og önnur mannvirki sem þar var að finna.

Mælingar á fyrra flóðinu sem féll úr Skollahvilft benda til þess að það hafi verið á 45-60 m/s hraða sem samsvarar 150-200 km hraða á klst. áður en það kom að garðinum ofanvert við miðju.

Flóðin úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili eru með allra stærstu snjóflóðum sem fallið hafa á leiðigarða í heiminum og gefa mikilsverðar upplýsingar um streymi snjóflóða sem lenda á fyrirstöðum og virkni leiðigarða, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar.

Mælingar á rúmmáli flóðanna liggja ekki fyrir en út frá tiltækum upplýsingum er áætlað að Skollahvilftarflóðið kunni að vera sambærilegt að stærð við flóðið sem féll úr Skollahvilft í október 1995. Flóðið úr Innra-Bæjargili var mun minna að rúmmáli enda upptakasvæði þess minna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert