Gera athugasemdir við öryggisáætlun Mountaineers

Hundruð björgunarsveitarmanna tóku þátt í að bjarga 39 ferðamönnum sem …
Hundruð björgunarsveitarmanna tóku þátt í að bjarga 39 ferðamönnum sem lentu í hrakningum við rætur Langjökuls í ferð á vegum Mountaineers 9. janúar. Ljósmynd/Katia Kuwabara

Ferðamálastofa gerði athugsemdir við einstaka þætti öryggisáætlunar ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers, sem þó uppfyllir formskilyrði laga um öryggisáætlanir.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Ferðamálastofu. Þar segir að í kjölfar frétta af farþegum ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers sem lentu í hrakningum í vélsleðaferð 7. janúar síðastliðinn hafi Ferðamálastofa óskað eftir gildandi öryggisáætlun fyrirtækisins og skýringum á tilurð atviksins.

Eftirliti og skoðun Ferðamálastofu beindist fyrst og fremst að öryggisáætlun vélsleðaferðarinnar, sem samkvæmt tilkynningu innihélt þá þætti sem gerður er áskilnaður um í lögum. „Það er því mat Ferðamálastofu að öryggisáætlun Mountaineers uppfylli formskilyrði 11. gr. laga um Ferðamálastofu nr. 96/2018.

Ferðamálastofa skoðaði einnig atriði sem varða öryggisáætlanir almennt og gerði athugasemdir við að einstakir þættir öryggisáætlunar ferðaþjónustufyrirtækisins mættu vera ítarlegri og skýrari, meðal annars varðandi veðurfar og skilyrði, kynningu á öryggisreglum og -þáttum til farþega og starfsmanna, leiðarval og ytri aðstæður. 

Ferðaþjónustufyrirtækinu Mountaineers hafa verið kynntar athugasemdir Ferðamálastofu og hefur því verið veittur mánaðarfrestur til úrbóta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert