Bökuðu köku fyrir samninganefnd ríkisins

Félögin ellefu sem stóðu að bökun kökunnar eru Dýra­lækna­fé­lag Íslands, …
Félögin ellefu sem stóðu að bökun kökunnar eru Dýra­lækna­fé­lag Íslands, Fé­lag geisla­fræðinga, Fé­lag ís­lenskra nátt­úru­fræðinga, Fé­lag ís­lenskra hljómlist­ar­manna, Fé­lag líf­einda­fræðinga, Fé­lags­ráðgjafa­fé­lag Íslands, Iðjuþjálf­a­fé­lag Íslands, Kjara­fé­lag viðskipta­fræðinga og hag­fræðinga, Ljós­mæðrafé­lag Íslands, Sál­fræðinga­fé­lag Íslands og Þroskaþjálf­a­fé­lag Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Fulltrúar ellefu aðildarfélaga BHM færðu samninganefnd ríkisins heimabakaða köku á samningafundi í morgun. Í fréttatilkynningu frá BHM-félögunum ellefu segir að með þessi hafi félögin viljað hvetja samninganefnd ríkisins til dáða, en viðræður hafa staðið yfir í tæpa tíu mánuði og „lítið þokast í samningsátt“.

Félögin ellefu, sem eru í samfloti í kjaraviðræðum við ríkið, telja að þær launahækkanir sem ríkið hefur boðið á þeim 42 fundum sem farið hafa fram til þessa séu ófullnægjandi. Þá geti félögin ekki sætt sig við að félagsmenn greiði fyrir styttingu vinnuvikunnar með lækkun á yfirvinnutaxta og sölu kaffi- og matarhléa, eins og ríkið hafi boðið.

„Að mati félaganna er þetta ekki til þess fallið að draga úr vinnutengdri streitu og álagi. Þvert á móti er hætta á að tíðni veikinda hjá starfsfólki aukist með tilheyrandi kostnaði fyrir ríkisstofnanir og samfélagið allt.“

Félögin ellefu sem stóðu að bökun kökunnar eru Dýra­lækna­fé­lag Íslands, Fé­lag geisla­fræðinga, Fé­lag ís­lenskra nátt­úru­fræðinga, Fé­lag ís­lenskra hljómlist­ar­manna, Fé­lag líf­einda­fræðinga, Fé­lags­ráðgjafa­fé­lag Íslands, Iðjuþjálf­a­fé­lag Íslands, Kjara­fé­lag viðskipta­fræðinga og hag­fræðinga, Ljós­mæðrafé­lag Íslands, Sál­fræðinga­fé­lag Íslands og Þroskaþjálf­a­fé­lag Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert