Aldrei fleirum verið veitt vernd á einu ári

Tæpur fimmtungur umsókna um vernd hér á landi kom frá …
Tæpur fimmtungur umsókna um vernd hér á landi kom frá ríkisborgurum ríkja á lista yfir örugg upprunaríki og er það nokkur fækkun borið saman við árið á undan en þó einkum árin tvö þar á undan, þegar rúmur helmingur umsækjenda kom frá öruggum upprunaríkjum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Útlendingastofnun segir að góður árangur hafi náðs við afgreiðslu umsókna um alþjóðlega vernd hjá stofnuninni í fyrra. Afgreiddum umsóknum fjölgaði um 42% miðað við árið á undan, óafgreiddum umsóknum fækkaði um 37% frá ársbyrjun auk þess sem málsmeðferðartími styttist verulega eftir því sem leið á árið. 

Fram kemur, að umsóknir um alþjóðlega vernd hafi verið 867 og fjölgaði lítillega milli ára en flestir umsækjendur komu frá Venesúela og Írak. Hlutfallslega voru umsóknir um vernd flestar á Íslandi af Norðurlöndunum. 

Þá segir, að fjöldi einstaklinga sem Útlendingastofnun veitti vernd hafi aldrei verið meiri á einu ári sem skýrist af því hve stór hluti umsækjenda hafði þörf fyrir vernd og hve mörg mál tókst að afgreiða.

„Til viðbótar við þá 376 einstaklinga, sem fengu jákvæða niðurstöðu hjá Útlendingastofnun, fengu samtals 155 einstaklingar veitta alþjóðlega vernd eða mannúðarleyfi hjá kærunefnd útlendingamála, sem aðstandendur flóttamanna hér á landi eftir umsókn til Útlendingastofnunar eða sem kvótaflóttamenn í boði íslenskra stjórnvalda. Í heild fékk því 531 einstaklingur alþjóðlega vernd, viðbótarvernd eða dvalarleyfi af mannúðarástæðum hér á landi árið 2019,“ segir á vef Útlendingastofnunar. 

Umsækjendur um vernd frá 71 ríki

Enn fremur segir, að umsóknir um alþjóðlega vernd árið 2019 hafi verið 867 og voru umsækjendur af 71 þjóðerni. Fjöldi umsókna var nokkru meiri en á síðasta ári þegar umsóknir voru 800.

Í samanburði við Norðurlöndin voru umsóknir um alþjóðlega vernd hlutfallslega flestar á Íslandi, 24 á hverja 10.000 íbúa, og næstflestar í Svíþjóð, 22 á hverja 10.000 íbúa. Mun færri umsóknir voru lagðar fram í Finnlandi og fæstar í Danmörku og Noregi, sem hlutfall af íbúafjölda, að því er stofnunin greinir frá. 

Nánar á vef Útlendingastofnunar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert