Kristján Þór situr fyrir svörum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, situr nú fyrir svörum …
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, situr nú fyrir svörum á opnum fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, ásamt Kristjáni Skarphéðinssyni, ráðuneytisstjóra atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins. mbl.is/Árni Sæberg

Fundur er hafinn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis þar sem Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, kemur fyrir nefndina.

Þrír þing­menn stjórn­ar­and­stöðunn­ar samþykktu á fundi nefndarinnar í desember að hefja frum­kvæðis­at­hug­un á því hvernig Kristján Þór hygðist láta meta hæfi sitt vegna tengsla við út­gerðarfé­lagið Sam­herja og hvort til­efni hefðu verið til slíkr­ar at­hug­un­ar fyrr í ráðherratíð hans.

Kristján Skarphéðinsson, ráðuneytisstjóri atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins, er einnig gestur fundarins og búist er við að hann standi til klukkan 11.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert