Kemur til greina að beita einangrun

Landlæknisembættið er til húsa við Katrínartún 2 Í Reykjavík.
Landlæknisembættið er til húsa við Katrínartún 2 Í Reykjavík. mbl.is/Styrmir Kári

„Þrátt fyrir upplýsingar um aukna útbreiðslu hinnar nýju veiru þá eru ekki vísbendingar um að hún sé hættulegri en áður hefur verið talið,“ segir í fréttatilkynningu frá Landlæknisembættinu vegna kórónaveirunnar sem kom fyrst upp í Wuhan í Kína og um 900 manns hafa nú greinst með í heiminum. Þar af hafa 26 látist.

Fram kemur að sóttvarnalæknir hafi, í ljósi aukinnar útbreiðslu veirunnar víða um heim, hafið vinnu í samræmi við fyrirliggjandi viðbragðsáætlun um alvarlega smitsjúkdóma í samvinnu við almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, en grunur er meðal annars um smit í nokkrum Evrópuríkjum. Þar á meðal í Finnlandi og Bretlandi.

Kunna að þurfa að fara í sóttkví

„Farþegar á Keflavíkurflugvelli sem koma til landsins munu fá skilaboð þess eðlis að ef þeir eru með merki um öndunarfærasýkingu og hafa verið í Wuhan Kína á undangengnum 14 dögum eða hafa verið í samgangi við einstaklinga með grunaða eða staðfesta sýkingu, þá þurfi að gera á þeim læknisfræðilegt mat á Keflavíkurflugvelli. Framhald aðgerða ræðst af læknisfræðilegu mati en einangrun mun koma til greina,“ segir einnig.

Enn fremur verði einkennalausir farþegar, sem hafa verið í Wuhan Kína á undanförnum 14 dögum eða verið í samgangi við einstaklinga með grunaða eða staðfesta sýkingu, beðnir um að gefa sig fram. Þessir einstaklingar geti vænst þess verða settir í sóttkví í einhverja daga. Aðgerðirnar miði að því að finna sýkta og hugsanlega smitaða einstaklinga sem fyrst og draga þannig úr líkum á frekari útbreiðslu innanlands.

Koma upplýsingum til ferðamanna

Hins vegar segir að ekki sé talin ástæða til að mæla hita allra farþega eða leggja fyrir þá spurningalista á Keflavíkurflugvelli þar eð slíkar aðgerðir hafi reynst bæði kostnaðarsamar og árangurslitlar. Heilbrigðisstofnanir landsins hafi aukinheldur verið upplýstar um veiruna og þær hvattar til að uppfæra viðbragðsáætlanir sínar og huga meðal annars að einangrunaraðstöðu. Gefnar verði út leiðbeiningar á heimasíðu Landlæknis til almennings um hvernig nálgast eigi heilbrigðisstofnanir vakni grunur um sýkingu.

Þá kemur fram að sérstakri síðu hafi verið komið upp á vef Landlæknisembættisins með upplýsingum og leiðbeiningum vegna veirunnar, bæði fyrir almenning og heilbrigðisstarfsmenn. „Þar munu verða birtar nýjustu fréttir um sýkinguna og leiðbeiningar uppfærðar eins og þurfa þykir. Í samvinnu við ferðamálastofu verður upplýsingum um veiruna og aðgerðir gegn henni komið til ferðamanna á Íslandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert