Stöðug fjölgun millilandafarþega á Akureyri

Millilandafarþegum um Akureyrarflugvöll hefur fjölgað mjög.
Millilandafarþegum um Akureyrarflugvöll hefur fjölgað mjög. Ljósmynd/Auðunn Níelsson

Fjölgun millilandafarþega um Akureyrarflugvöll nam 38% árið 2019 miðað við árið á undan.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Norðurlands þar sem vitnað er í tölur Isavia. Samkvæmt þeim nam fjölgunin árið 2017 24% frá fyrra ári og árið 2018 var hún yfir 70% miðað við fyrra ár.

Það styttist í að ferðamenn á vegum hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel komi í fyrstu vetrarferð ársins til Norðurlands, að því er segir í tilkynningunni. Transavia annast flugið og verða ferðirnar átta talsins frá 14. febrúar til 9. mars.

„Fjölgun í heimsóknum erlendra ferðamanna yfir vetrartímann er kærkomin innspýting fyrir ferðaþjónustuna á svæðinu. Þá er þessi stöðugi og mikli vöxtur merki um þann árangur sem hefur náðst í markaðssetningu áfangastaðarins Norðurlands og undirstrikar mikilvægi þess að ráðist verði í uppbyggingu á Akureyrarflugvelli til framtíðar,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert