Niðurstöður skimana birtar rafrænt

Hætt verður að senda niðurstöður á pappírsformi.
Hætt verður að senda niðurstöður á pappírsformi. Ljósmynd/Krabbameinsfélagið

Frá og með deginum í dag mun Leitarstöð Krabbameinsfélagsins birta allar rannsóknarniðurstöður skimana í persónulegu pósthólfi kvenna á island.is. Þetta á jafnt við um niðurstöður úr brjóstamyndatökum Leitarstöðvarinnar og leghálsstrokum óháð því hvar þau eru tekin.

Hingað til hefur Leitarstöðin einungis sent konum bréf með niðurstöðum þegar eitthvað hefur fundist óeðlilegt við skimun fyrir leghálskrabbameini. Þeim bréfsendingum verður hætt í pappírsformi og niðurstöðurnar einungis sendar rafrænt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Krabbameinsfélaginu.

Með þessari breytingu munu nú allar konur fá niðurstöður úr rannsóknum, hvort sem þær eru jákvæðar eða neikvæðar og hvort sem um skimun fyrir brjósta- eða leghálskrabbameini er að ræða.

„Þetta er viðleitni okkar til að mæta nýjum tímum og auka skilvirkni um leið og við hugum að umhverfissjónarmiðum og kostnaði við að senda bréf með hefðbundnum hætti,“ segir Ágúst Ingi Ágústsson, yfirlæknir og sviðsstjóri leitarsviðs Krabbameinsfélagsins.

Á síðasta ári hóf Leitarstöðin að senda öll bréf um boð í skimun rafrænt á island.is jafnhliða því að senda boðsbréfin í bréfpósti. Það fyrirkomulag mun verða áfram í gildi um einhvern tíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert