Aðalsteinn Leifsson skipaður ríkissáttasemjari

Aðalsteinn Leifsson hefur verið skipaður ríkissáttasemjari.
Aðalsteinn Leifsson hefur verið skipaður ríkissáttasemjari.

Aðalsteinn Leifsson, framkvæmdastjóri hjá EFTA, hefur verið skipaður nýr ríkissáttasemjari frá og með 1. apríl, en þetta kemur fram í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu. Helga Jónsdóttir settur ríkissáttasemjari mun gegna störfum fram til þess tíma.

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra skipaði Aðalstein í embættið og var það mat ráðherra að Aðalsteinn uppfyllti best þær kröfur sem gerðar væru til þess sem hlyti embættið, en Aðalsteinn var metinn jafnhæfur og tveir aðrir einstaklingar til að gegna embættinu af ráðgefandi nefnd sem ráðuneytið skipaði í upphafi árs til að meta umsækjendur.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að enn fremur sé það niðurstaða ráðherra, eftir samráð við forsvarsmenn samtaka aðila vinnumarkaðarins, „að afstaða Aðalsteins Leifssonar sé slík að telja verði hana óvilhalla í málum launafólks og atvinnurekenda enda hafi hann samhliða öðrum störfum, starfað sem aðstoðarríkissáttasemjari frá því í byrjun árs 2019.“

Aðalsteinn er stjórnmálafræðingur frá Háskóla Íslands, lauk MBA-námi frá Edinburgh Business School og Herriot Watt University árið 2004 og hefur einnig lokið meistaranámi frá London School of Economics, auk þess sem hann stundaði doktorsnám í samningatækni við Greneoble Ecole de Management samhliða vinnu á árunum 2016-2018.

Aðalsteinn ræddi um ástríðu sína fyrir samningatækni í viðtali við Smartland á mbl.is í ágúst í fyrra.

Hefur leitt daglegan rekstur EFTA frá 2014

Hann hefur frá því í janúar 2014 leitt daglegan rekstur EFTA, sem hefur starfsstöðvar í Genf, Brussel og Lúxemborg og tæplega eitt hundrað starfsmenn. Í tilkynningu ráðuneytisins segir að í því starfi hafi „reynt á verkstjórn og forystuhæfileika Aðalsteins, oft og tíðum við krefjandi aðstæður.“

„Einnig hefur hann leitt skrifstofu aðalframkvæmdastjóra EFTA. Samhliða starfi sínu hjá EFTA hefur Aðalsteinn starfað sem lektor við Háskólann í Reykjavík þar sem hann hefur meðal annars kennt samningatækni og lausn deilumála í MBA-námi og í meistaranámi innan hinna ýmsu deilda skólans. Í framangreindri kennslu, við ráðgjöf og í nýlegri bók sinni sem og samningaviðræðum almennt hefur Aðalsteinn lagt áherslu á traust, heiðarleika, opin samskipti og gagnkvæman ávinning.

Þá hefur Aðalsteinn, eins og áður er nefnt, starfað sem aðstoðarríkissáttasemjari frá því í byrjun árs 2019 vegna samninga á almennum vinnumarkaði og hefur hann veitt embættinu liðsinni og verið til ráðgjafar auk þess að sitja fundi með samningsaðilum þar sem meðal annars hefur reynt á hæfni hans í mannlegum samskiptum.

Aðalsteinn hefur því víðtæka þekkingu og reynslu á samningamálum en auk fræðilegrar þekkingar hefur hann reynslu af þátttöku í samningaviðræðum, kennslu í samningatækni, ráðgjöf við samningsaðila og aðstoð við deiluaðila við að bæta samskipti en allt er þetta reynsla og þekking sem talin er mikilvæg þegar kemur að því að skipa í embætti ríkissáttasemjara.

Í ljósi framangreinds er það mat félags- og barnamálaráðherra að Aðalsteinn sé best til þess fallinn, af þeim umsækjendum sem framangreind nefnd taldi hæfasta til að gegna embætti ríkissáttasemjara, að annast sáttastörf í vinnudeilum milli launafólks og félaga þess annars vegar og atvinnurekenda og félaga þeirra hins vegar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert