Davíð og Sunnu sagt upp á Fréttablaðinu

Garðar Örn Úlfarsson og Ari Brynjólfsson hafa verið ráðnir fréttastjórar …
Garðar Örn Úlfarsson og Ari Brynjólfsson hafa verið ráðnir fréttastjórar að Fréttablaðinu en Kristján Kormákur Guðjónsson verður einn ritstjóri frettabladid.is og hringbraut.is. mbl.is/Kristinn Magnússon

Davíð Stefánssyni öðrum ritstjóra Fréttablaðsins og Sunnu Karen Sigurþórsdóttur, öðrum ritstjóra vefmiðlanna hringbraut.is og frettabladid.is, hefur verið sagt upp störfum. 

Greint var frá uppsögnunum á vef Fréttablaðsins.

Sunna hafði starfað um árabil á Fréttablaðinu en Davíð tók við sem annar ritstjóri þess í júní í fyrra.

Garðar Örn Úlfarsson og Ari Brynjólfsson hafa verið ráðnir fréttastjórar að Fréttablaðinu en Kristján Kormákur Guðjónsson verður einn ritstjóri frettabladid.is og hringbraut.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert