Töluvert ber á olíublautum fuglum

Olíublautir fuglar hafa fundist bæði við Heimaey og í Reynisfjöru …
Olíublautir fuglar hafa fundist bæði við Heimaey og í Reynisfjöru að undanförnu. Uppruna mengunarinnar er leitað. Á myndinni sést langvía. Ljósmynd/Gunnar Kristjánsson

Töluvert hefur borið á olíublautum sjófuglum í Vestmannaeyjum undanfarna daga og vikur og hafa flestir fuglarnir fundist við höfnina í Heimaey og í Klaufinni, rétt við Stórhöfða. Á vef Umhverfisstofnunar segir að ekki sé vitað hvað þessu veldur, en ástandið hefur verið viðvarandi í „óvenjulangan tíma“ eða allt frá áramótum.

„Einnig hafa fundist olíublautar langvíur í Reynisfjöru, en óljóst er hvort þessi mál tengjast. Fjöldi fugla sem fundist hefur á þessum stöðum skiptir nú nokkrum tugum,“ segir í umfjöllun á vef Umhverfisstofnunar.

Þar segir einnig að áhöfnin á TF-EIR, þyrlu Landhelgisgæslunnar, hafi farið með fulltrúa Umhverfisstofnunar í eftirlitsflug á þriðjudag í leit að uppruna mengunarinnar.

„Flogið var umhverfis allar eyjar Vestmannaeyja og að Reynisfjöru en ekkert fannst í þeim leiðangri. Umhverfisstofnun mun áfram vinna í því að leita að uppruna mengunarinnar, meðal annars með aðstoð Landhelgisgæslu Íslands og EMSA, Siglingaöryggisstofnun Evrópu,“ segir á vef stofnunarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert