Skjárinn ræður örlögum

Pálmi hefur leikið á fjölum Þjóðleikhússins í næstum 40 ár. …
Pálmi hefur leikið á fjölum Þjóðleikhússins í næstum 40 ár. Nú leikur hann í draumahlutverki í Útsendingu, verki sem hann telur aldrei hafa átt meira erindi til almennings en nú. mbl.is/Ásdís

Pálmi Gestsson er þjóðinni kunnur en hann hefur verið á fjölum Þjóðleikhússins í hátt í fjörutíu ár. Meðfram fullri vinnu sinnti hann Spaugstofunni í áratugi. Í dag leikur hann aðalhlutverkið í Útsendingu sem hann segir draumahlutverk og finnst honum sagan aldrei hafa átt jafn mikið erindi við fólk og nú.

Dreifbýlistúttungur í mér

Við ákveðum að ræða hvorki veturinn né kórónuveiruna, heldur snúum okkur að skemmtilegri hlutum; leiklistinni og lífinu sjálfu. Pálmi leikur um þessar mundir draumahlutverk; Howard Beale í Útsendingu. Hlutverk sem Pálmi segist hafa smellpassað inn í og vill gjarnan ræða, þótt hann segist minna gefinn fyrir sviðsljósið með árunum.

„Ég er ekki mikið fyrir sviðsljósið í seinni tíð, ég finn það. Ég er meira að segja nýbúinn að fá mér hús uppi á heiði og líður vel þar. Þarna er hektari af skógi. Fyrir svona sveitavarg eins og mig er það dásamlegt.“

Spaugstofan beitt gagnrýni

Það er ekki hægt að spjalla við Pálma án þess að minnast á Spaugstofuna en hún skipaði stóran sess í lífi hans, sem og þjóðarinnar.

„Við gerðum held ég 550 þætti og alltaf meðfram fullu starfi hér. Það var lýjandi að vera með vikulegan þátt og í fullri vinnu. Í dag hljómar þetta fyrir mér eins og geðveiki,“ segir hann og bætir við að þeir hafi yfirleitt skemmt sér stórvel við gerð þáttanna, þótt stundum hafi það ekki verið auðvelt að vera með nýtt og ferskt efni í viku hverri.

„Ég lenti svolítið í því að herma eftir. Ekki vegna þess að ég hefði einhverja sérstaka hæfileika í það, en hinir gátu bara ekkert hermt eftir,“ segir Pálmi og hlær.

„Mér fannst alltaf gaman að leika Steingrím Hermannsson, þann mikla höfðingja sem ég bar mikla virðingu fyrir,“ segir Pálmi og segir að langflestir alþingismenn og ráðherrar hafi kunnað vel að meta húmorinn.

„Þó var einn sem var mjög ósáttur við mig. Hann reyndi að fá útvarpsstjóra til að taka þáttinn af dagskrá. Við höfðum heilmikil áhrif og ef út í það er farið heilmikil völd. Þetta var ekki bara eitthvert sprell. Þetta var beitt gagnrýni og það kom fyrir að fólk hringdi í okkur til að klaga einhvern og reyna að fá okkur til að gera ákveðna hluti,“ segir Pálmi og ákveður að upplýsa ekki meir um það.

Smellpassar í hlutverkið

Pálmi hefur leikið í á annað hundrað leikverkum á ferlinum. Það er því af nógu að taka þegar blaðamaður biður hann um að nefna það sem stendur upp úr; kannski allt of miklu!

„Það er svolítið margt! Nú stendur það upp úr sem ég er að gera núna. En það er af ýmsu að taka, en eðli þessa starfs er þannig að leikari fær kannski aldrei hlutverk alla sína ævi sem gjörsamlega hentar honum. Kannski gerist það einu sinni eða tvisvar. 80-90% af starfi leikarans fara í að glíma við eitthvað sem hann á kannski ekkert auðvelt með. Þess vegna er mikilvægt að vel sé kastað í rullurnar.“

„Mér finnst þetta vera algjörlega „spot on“. Og þótt við …
„Mér finnst þetta vera algjörlega „spot on“. Og þótt við séum í klæðaburði frá áttunda áratugnum er galið að vantreysta áhorfendum og halda að þeir geti ekki sett þetta í samhengi,“ segir Pálmi um leikritið Útsendingu. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

Manstu eftir svoleiðis hlutverki, sem passaði þér fullkomlega?

„Já, mér finnst ég eiga heima í þessari Útsendingu. Þessi saga og þessi texti höfðaði mjög til mín. Þessar ræður sem hann flytur hefði ég getað verið að flytja sjálfur; það er mikill munur ef maður getur talað frá hjartanu,“ segir hann.

„Þetta hlutverk náði strax til mín þegar ég fór að lesa það. Ég man eftir myndinni á sínum tíma en það hafði nú fennt yfir það. Þegar ég las þetta fannst mér þetta hitta í mark. Svo er frábær hópur sem stendur að þessu og frábært að vinna með Góa. Hann er mikill listamaður og svo er hann bara svo góð manneskja og skemmtilegur, sem er nú það sem ég kann best að meta í fari fólks.“

Gagnrýnendur á Íslandi hafa verið að deila um hvort þessi saga eigi erindi í dag. Hvað finnst þér?

„Ég næ ekki alltaf þessari leiklistarumfjöllun hér. Mér finnst þetta vera algjörlega „spot on“. Og þótt við séum í klæðaburði frá áttunda áratugnum er galið að vantreysta áhorfendum og halda að þeir geti ekki sett þetta í samhengi. Það er hægt að yfirfæra þessa hugmyndafræði yfir á samfélagsmiðlana í nútímanum og ef fólk getur það ekki hefur það ekki mikið hugmyndaflug. Mér hefur alltaf fundist þetta liggja lóðbeint við,“ segir Pálmi og bendir á að í dag stýri Trump öllum heiminum á twitter.

„Þetta er svipað og þegar við setjum upp Shakespeare, Lé konung til dæmis. Þar má finna alla galla og breyskleika mannsins, dauðasyndir eins og hégóma og græðgi,“ segir Pálmi og segir þessi klassísku leikrit alltaf eiga vel við.

„Það er oft sagt að tímarnir breytist og mennirnir með. Mér finnst það bara della. Tímarnir breytast en mennirnir ekki.“

Skjárinn ræður örlögum

 „Þannig að mér finnst Útsendingin kallast á við allt sem er að gerast í dag; alla þessa mötun og falsfréttir. Fólk er farið að láta samfélagsmiðla segja sér hvernig því eigi að líða og hvað það eigi að gera. Og þá er ég að vitna beint í minn mann,“ segir Pálmi. 

„Howard Beale er orðinn pínulítið tæpur en þá getur maður líka spurt; hver er tæpur, hann eða allir í kringum hann? Eða allur heimurinn? Áhorfið er farið niður á við og honum er sagt upp; hann missir konuna sína og er farinn að drekka. Hann hefur trúlega verið í áratugi að segja fréttir sem voru í raun lygar. Hann var alltaf að ljúga að fólki en svo byrjar hann að segja fólki hvað honum virkilega finnst. Þessar aðstæður knýja hann til þess,“ segir Pálmi og segir sjónvarpið mikið valdatæki.

Pálmi fær glimrandi dóma fyrir leik sinn í Útsendingunni og …
Pálmi fær glimrandi dóma fyrir leik sinn í Útsendingunni og finnst honum hlutverkið smellpassa sér. Ljósmynd/Hörður Sveinsson

„Ef ég vitna í hann þá segir hann: „þessi skjár er í augum fólks boðberi heilags sannleika. Þessi skjár er hin æðsta opinberun. Þessi skjár getur ráðið örlögum forseta, páfa, forsætisráðherra. Þessi skjár er mesta ægivald sem fyrirfinnst í öllum þessum guðlausa heimi. Og aumingja við ef yfirráðin yfir þessu tæki lenda þar sem síst skyldi,“ segir hann og heimfærir þessa línur yfir á nútímann. 

„Við vitum alveg af hverju Trump var kosinn, við sjáum popúlista rísa upp víða um heim. Þetta er ákveðin heilaþvottur. Fólk er svo fljótt að trúa og auðvelt er að planta einhverju inn hjá fólki. Og það gera fjölmiðlar og það er það sem hann er að tala um. Skjáir í dag segja okkur hvernig við eigum að klæða okkur, borða, ala upp krakkana. Þessi nútímaveröld okkar byggist á þessum stanslausa áróðri.“

Hef varla sleppt hamrinum

Hvað er fram undan?

„Ég vona að ég fari að komast í frí. Þessi vetur er búinn að vera dálítið meira en meðalvetur. Strax eftir frumsýningu á Útsendingunni tókum við aftur upp sýningar á Einræðisherranum, og í haust var ég í Ör og Meistaranum og Margarítu. Þannig að þeir eru teljandi á fingrum annarrar handar frídagarnir sem ég hef fengið síðan í ágúst eða september. Ég held að ég sé búinn að skila mínu í vetur. Ég fer vestur um páska og í sumar. Annars fer ég kannski minna vestur núna þegar ég þarf að lappa upp á húsið á heiðinni. Mér líður oft best þegar ég er að dunda við eitthvert handverk. Það var ekki þannig áður fyrr; þegar ég hætti í smíðinni og fór í þetta ætlaði ég aldrei að taka á hamri aftur. En svo gerðist það nú tveimur áratugum síðar, og þá kannski af illri nauðsyn að ég tók aftur upp hamarinn og hef varla sleppt honum síðan. Mér finnst handverk svo göfugt.“

Ítarlegt viðtal er við Pálma í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins um helgina. 




Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert