Íslendingum ráðið frá ferðalögum

Katrín Jakobsdóttir.
Katrín Jakobsdóttir. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslensk stjórnvöld ráða Íslendingum frá ferðalögum og hvetja Íslendinga á ferðalagi erlendis til að íhuga að flýta heimför. Er þetta gert að tillögu utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra í ljósi þeirra yfirgripsmiklu ráðstafana sem erlend ríki hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 og kunna að hafa áhrif á Íslendinga erlendis.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Þar er talað um að undanfarinn sólarhring hafa erlend ríki gripið til þess að loka landamærum og skylda alla sem þangað koma í sóttkví. Ekki er hægt að útiloka að fleiri ríki muni grípa til svipaðra ráðstafana á næstu dögum.

Það er mat utanríkisráðuneytisins, að höfðu samráði við forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra, sóttvarnarlækni og almannavarnir, að tímabært sé að ráða Íslendingum formlega frá því að leggja upp í ferðalög. Þá eru Íslendingar á ferðalagi erlendis beðnir að íhuga hvort ástæða sé til að flýta heimför með tilliti til ofangreindra þátta og Íslendingar búsettir erlendis hvattir til að kanna rétt sinn til heilbrigðisþjónustu.

„Með þessum ráðleggingum er brugðist við þeirri stöðu sem upp er komin vegna viðbragða margra ríkja við faraldrinum sem nú geisar. Þær hafa að sjálfsögðu mikil áhrif á samfélag okkar og stöðu Íslendinga á ferðalögum erlendis,“ segir Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra í tilkynningunni. 

„Víða eiga Íslendingar á hættu að verða innlyksa eða lenda í sóttkví við erfiðar aðstæður. Ekki er víst hvaða aðgang og réttindi Íslendingar munu hafa að heilbrigðisþjónustu auk þess sem heilbrigðiskerfi í mörgum ríkjum anna ekki álagi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra, í tilkynningunni. „Í því ljósi höfum við ákveðið að ráða Íslendingum gegn ferðalögum erlendis og þeim sem eru á ferðalagi erlendis að íhuga að snúa heim fyrr en ella.“

Áfram gilda skilgreiningar sóttvarnalæknis um áhættusvæði og tilmæli hans um að Íslendingar sem þaðan komi fari í sóttkví. Ekki er gert ráð fyrir að takmarka ferðir erlendra ferðamanna hingað til lands.

Sigurður Ingi Jóhansson að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Sigurður Ingi Jóhansson að loknum ríkisstjórnarfundi í dag. mbl.is/Sigurður Unnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert