240 sagt upp hjá Icelandair

Um 240 starfsmönnum verður sagt upp störfum hjá Icelandair. Þær uppsagnir ná til flestra hópa innan félagsins. Heildarfjöldi stöðugilda hjá Icelandair Group var að meðaltali 4.715 á árinu 2019. Þetta er meðal þeirra aðgerða sem Icelandair er að grípa til vegna kórónuveirunnar. Jafnframt verður skerðing á starfshlutfalli 92% starfsmanna félagsins og þeir sem verða áfram í fullu starfi lækka um tugi prósenta í launum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.

Flýgur nú 14% af flugáætlun og meiri skerðing í vændum

„Forsendur fyrir millilandaflugi og ferðalögum hafa breyst verulega á skömmum tíma vegna útbreiðslu COVID-19 veirunnar. Icelandair Group hefur á undanförnum vikum gripið til víðtækra ráðstafana til þess að tryggja rekstrargrundvöll félagsins til framtíðar. Á sama tíma er það markmið félagsins að verja störf eins og mögulegt er og þjóna viðskiptavinum eftir bestu getu.

Icelandair hefur á liðnum vikum nýtt sér þann sveigjanleika sem felst í leiðakerfi félagsins og aðlagað þannig framboð að eftirspurn sem jafnt og þétt hefur farið minnkandi í kjölfar ferðatakmarkana víðs vegar um heim. Félagið hefur jafnframt breytt áætlun til að koma viðskiptavinum til síns heima innan þess ramma sem ferðatakmarkanir hafa leyft. Í dag flýgur félagið um 14% af upphaflegri flugáætlun og gert er ráð fyrir enn meiri samdrætti á komandi vikum.

Eins og gefur að skilja hefur útbreiðsla veirunnar einnig haft töluverð áhrif á starfsemi annarra félaga innan samstæðu Icelandair Group. Má þar helst nefna fækkun farþega í innanlandsflugi og stöðvun flugs til Grænlands hjá Air Iceland Connect sem og fækkun gesta hjá Icelandair Hotels.

Stærsti kostnaðarliður félagsins er launakostnaður og er því nauðsynlegt að grípa til aðgerða til að draga úr þeim kostnaði. Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar og samstarf við Félag íslenskra atvinnuflugmanna, Flugfreyjufélag Íslands, Flugvirkjafélag Íslands og önnur stéttafélög gera félaginu kleift að draga úr uppsögnum sem nauðsynlegt hefði verið að ráðast í vegna þeirrar stöðu sem nú ríkir,“ segir í tilkynningu.

Icelandair Group hefur gripið til eftirfarandi aðgerða í dag:

92% starfsmanna munu fara í skert starfshlutfall tímabundið. Þessi hópur fellur undir úrræði ríkisstjórnarinnar um mótframlag eftir því sem við á. Þessi leið hefur betri áhrif á sjóðstreymi félagsins en uppsagnir þar sem uppsagnarfrestur er greiddur.

Um 240 starfsmönnum verður sagt upp störfum. Þær uppsagnir ná til flestra hópa innan félagsins. Heildarfjöldi stöðugilda hjá Icelandair Group var að meðaltali 4.715 á árinu 2019 og má því áætla að verið sé að segja upp um 5% af heildarstarfsmannafjölda fyrirtækisins og að rúmlega 4.300 séu færðir í hlutastörf.

Þeir starfsmenn sem verða áfram í fullu starfi lækka um 20% í launum. Framkvæmdastjórar lækka um 25% og laun forstjóra og stjórnar lækka um 30%.

Þá hefur félagið að undanförnu leitað allra leiða til að draga úr útstreymi fjármagns, svo sem með því að endursemja við birgja og fjármögnunaraðila. Öllum þessum aðgerðum er ætlað að auka sveigjanleika félagsins til að takast á við núverandi aðstæður, lækka rekstrarkostnað og bæta sjóðsstreymi. Fjárhagsleg áhrif útbreiðslu COVID-19 veirunnar eru enn óljós.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sársaukafullar aðgerðir

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group. segir í tilkynningu: „Þetta eru sögulegir tímar þar sem heimsfaraldur geisar sem hefur haft gríðarleg áhrif á flug og ferðalög. Mikilvægasta verkefnið núna er að tryggja rekstrargrundvöll Icelandair Group til framtíðar. Þær aðgerðir sem við kynntum fyrir starfsfólki okkar í dag eru sársaukafullar en nauðsynlegar til að takmarka áhrif þeirra aðstæðna sem uppi eru á rekstur og sjóðstreymi félagins.

Félagið hefur staðist ýmis áföll í gegnum tíðina, hvort sem það hefur verið barátta við náttúruöflin, efnahagslægðir eða aðra utanaðkomandi þætti. Við höfum komist í gegnum þau öll með samstöðu og útsjónarsemi, en fyrst og fremst með þeim einstaka baráttuanda og krafti sem ávallt hefur einkennt starfsfólk félagsins. Það hefur svo sannarlega sýnt sig undanfarna daga og vikur. Ég er stoltur og þakklátur að tilheyra þeirri öflugu liðsheild sem starfsfólk Icelandair Group myndar og er sannfærður um að við komumst í gegnum þessar krefjandi aðstæður.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert