Kvikmyndafjelag Borgarfjarðar stendur fyrir spjallþætti í kvöld kl. 20.30 sem streymt verður á Youtube. Kvöldmolar nefnist þátturinn og er einkum hugsaður fyrir íbúa í Borgarfirði en einnig fyrir alla áhugasama. Spjallað verður við fólk sem stendur í ströngu þessa dagana við að hefta útbreiðslu kórónuveirunnar. Einnig verður boðið uppá nokkra hugljúfa tóna.
Þáttinn verður hægt að horfa á þessari slóð á Youtube. Nánari upplýsingar um þáttinn má nálgast á Facebook.
Kvikmyndafjelagið stendur einnig fyrir bílabíói í Borgarnesi á morgun, mánudag, líkt og fjallað var um á mbl.is um helgina.
Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.