Aldrei hafa víðlíka samdráttartölur sést

Umferðin hefur dregist saman um 30% á laugardögum.
Umferðin hefur dregist saman um 30% á laugardögum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Umferðin í mars á höfuðborgarsvæðinu dróst saman um 21 prósent og aldrei hafa viðlíka samdráttartölur sést. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar.

Eftir efnahagshrunið 2008 dróst umferðin mest saman um 3,5 prósent á milli mánaða í mars og mesti mældi samdráttur milli mánaða hingað til nemur 9,1 prósenti í apríl 2009. 35 þúsund færri ökutæki fóru um þrjú lykilmælisnið Vegagerðarinnar á höfuðborgarsvæðinu í mánuðinum sem var að ljúka. 

Eins og áður hefur komið fram í fréttum Vegagerðarinnar af umferð á höfuðborgarsvæðinu hefur orðið hrun í umferðinni yfir þrjú lykilmælisnið á svæðinu. Nú þegar marsmánuður er liðinn mælist samdrátturinn tæplega 21% frá sama mánuði á síðasta ári. 

Áður hafði mesti samdráttur milli marsmánaða mælst milli áranna 2010 og 2011, í kreppunni  eða sem nam 3,5%, og stærsti einstaki samdráttur hingað til varð á milli aprílmánaða 2008 og 2009 eða alls 9,1% samdráttur.

„Þannig að aldrei áður hafa sést tveggja stafa tölur í samdrætti á höfuðborgarsvæðinu. Þessi samdráttur er hreinlega af allt annarri stærðargráðu en áður hefur sést og því ná varla yfir þetta nægilega sterk lýsingarorð,“ segir í frétt á vef Vegagerðarinnar.

Mest dregst umferð saman um Hafnarfjarðarveg eða um rúmlega 27% og minnst um Vesturlandsveg eða um tæp 18%. „Áður hafði Vegagerðin lýst því að ekki hafi fundist haldbærar skýringar á því hvers vegna Hafnarfjarðarvegurinn dregst hlutfallslega mest saman. Hins vegar, þegar þessi samantekt hófst þá var sniðið svipað að stærð og sniðið á Reykjanesbraut og sniðið um Vesturlandsveg minnst en á síðasta ári var sniðið um Hafnarfjarðarveg orðið langminnst. Þar hefur umferð um umrætt snið ekki vaxið að sama krafti og um hin tvö sniðin, hvað sem veldur því,“ segir ennfremur.

Þriðja mánuðinn í röð mælist samdráttur í umferð á höfuðborgarsvæðinu og með þessum mikla samdrætti í mars hefur umferðin nú dregist saman um tæp 8% frá sama tímabili á síðasta ári. Aldrei áður hefur Vegagerðin mælt þvílíkan samdrátt miðað við árstíma og er hann rúmlega tvöfalt meiri en áður hefur sést nokkurn tíma, síðan þessi samantekt hófst.

Eins og gera mætti ráð fyrir dregst umferð mikið saman í öllum vikudögum en hlutfallslega mest um helgar og mest á laugardögum eða um tæp 30% en minnst dregst umferð saman á mánudögum eða um rétt rúmlega 16%. Mest var ekið á fimmtudögum en minnst á sunnudögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert