Blaðamannafundur vegna kórónuveiru

Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason, Alma D. Möller og Páll Matthíasson …
Víðir Reynisson, Þórólfur Guðnason, Alma D. Möller og Páll Matthíasson á blaðamannafundinum í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14:00 í dag. Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn, Alma D. Möller landlæknir og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.

Páll Matthíasson, forstjóri Landspítala, verður einnig á fundinum í dag.

 

Alma Möller landlæknir á blaðamannafundi.
Alma Möller landlæknir á blaðamannafundi. Ljósmynd/Lögreglan
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert