Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14.00 í Skógarhlíð 14.
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn og Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir munu fara yfir stöðu mála með tilliti til COVID-19 hér á landi.
Gestir fundarins í dag verða Páll Matthíasson forstjóri Landspítala og Óskar Reykdalsson forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.