Sjóvá lækkar iðgjöld bílatrygginga

Vegna kórónuveiru og samkomubanns er umferð á götum Reykjavíkur nú …
Vegna kórónuveiru og samkomubanns er umferð á götum Reykjavíkur nú sáralítil. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sjóvá hefur ákveðið að lækka iðgjöld af bifreiðatryggingum einstaklinga með því að fella niður gjalddaga þeirra í maí. Ástæða niðurfellingarinnar er að verulega hefur dregið úr umferð bifreiða eftir að samkomubann vegna COVID-19 tók gildi, að því er segir í tilkynningu.

Nú þegar hefur tjónstilkynningum vegna ökutækja til Sjóvár fækkað en í mars dróst t.d. umferð á höfuðborgarsvæðinu saman um 21% frá sama tímabili fyrir ári, samkvæmt tölum Vegagerðarinnar.

Niðurfellingin í maí nær til um 43 þúsund viðskiptavina Sjóvár og tekur til bæði lögboðinna ökutækjatrygginga og kaskó.

Viðskiptavinir sem fá þessa lækkun hafa fengið tölvupóst þess efnis og mun félagið jafnframt koma frekari skilaboðum til þeirra. Þessi aðgerð krefst ekki sérstakra viðbragða frá viðskiptavinum heldur fá þeir lækkunina sjálfkrafa.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Stöndum saman

Við hjá Árvakri viljum vekja athygli á því sem vel er gert á þessum erfiðu tímum. Ef þú ert með góða sögu af fyrirtækjum og einstaklingum sem eru að gera gott, sendu okkur ábendingu á netfangið stondumsaman@mbl.is.

Stöndum saman

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert