Staðfestum smitum fjölgar um 69

Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Fjöldi staðfestra smita af völd­um kór­ónu­veirunn­ar hér­lend­is er nú 1.486 sam­kvæmt nýj­ustu töl­um á covid.is. Greind­um smit­um fjölgaði um 69 í gær en töl­urn­ar sýna fjölda smita eft­ir gær­dag­inn.

Niðurstöðurnar eru í 1.445 sýnatökum en 59 smit greindust á sýkla- og veirufræðideild Landspítalans og 10 hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Tek­in hafa verið sam­tals 25.394 sýni. 1.054 er í ein­angr­un, 38 eru á sjúkra­húsi og 12 á gjör­gæslu. 428 er batnað, að því er kem­ur fram á covid.is.

Alls eru 5.511 í sótt­kví og 11.657 hafa lokið sótt­kví.

 

 

 




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert