Ákveðið að loka öllum orlofshúsum BHM yfir páskana

„Með ákvörðun sinni vill stjórn Orlofssjóðs BHM leggjast á árar …
„Með ákvörðun sinni vill stjórn Orlofssjóðs BHM leggjast á árar með yfirvöldum í baráttunni gegn útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Stjórn orlofssjóðs BHM hefur ákveðið að loka öllum orlofshúsum sjóðsins yfir páskana vegna kórónuveirufaraldursins. Sjóðfélagar sem áttu orlofshús bókuð um páskana munu fá endurgreitt sjálfkrafa og þurfa ekki sérstaklega að bera sig eftir því.

Fram kemur í tilkynningu frá BHM, að mikið álag sé nú á heilbrigðisstofnunum landsins. Almannavarnir og heilbrigðisyfirvöld hafi beint þeim tilmælum til fólks að ferðast ekki að óþörfu til að lágmarka álag á kerfið. Sérstaklega hafi fólk verið hvatt til að leggjast ekki í ferðalög yfir páskana heldur halda kyrru fyrir heima hjá sér. 

„Með ákvörðun sinni vill stjórn orlofssjóðs BHM leggjast á árar með yfirvöldum í baráttunni gegn útbreiðslu COVID-19 sjúkdómsins. Stjórnin mun funda 14. apríl og þá meta hvort tilefni sé til frekari lokana.

Sjóðfélagar geta afbókað orlofskosti sem þeir hafa tekið á leigu yfir tímabilið 15. apríl til og með 4. maí með sólarhrings fyrirvara og fá þá endurgreitt að fullu. Afbókunarbeiðnir skulu sendar á sjodir@bhm.is,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert