Fjórar tarantúlur í Húsdýragarðinn

Tarantúla. Mynd úr safni.
Tarantúla. Mynd úr safni. Af Wikipedia

Umhverfisstofnun veitti nýverið aðskilin leyfi til innflutnings á annars vegar fjórum risaköngulóm (tarantúlum) frá Þýskalandi og hins vegar fjórum fésuglum frá Bretlandi. Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn fær köngulærnar að ákveðnum skilyrðum uppfylltum til sýnis.

Þetta kemur fram í frétt á vef Umhverfisstofnunar.

Þar er einnig greint frá því að Sigrún Kærnested Óladóttir fær leyfi til innflutnings á fjórum fésuglum til að hafa til sýnis og fræðslu í sérútbúnu húsi með áföstu búri.

Um ræðir framandi lífverur í skilningi náttúruverndarlaga og er innflutningur þeirra þar af leiðandi háður leyfi Umhverfisstofnunar samkvæmt 63. gr. laga um náttúruvernd. Báðar umsóknir fengu umfjöllun hjá sérfræðinganefnd um framandi lífverur sem skipuð er sérfræðingum frá Náttúrufræðistofnun Íslands, Landbúnaðarháskólanum, Líf- og umhverfisvísindastofnun Háskóla Íslands, Hafrannsóknastofnun og sameiginlegum fulltrúa Skógræktarinnar og Landgræðslunnar,“ segir á vef Umhverfisstofnunar.

Við mat á umsóknum um leyfi til innflutnings á framandi lífverum ber Umhverfisstofnun að meta hvort innflutningurinn sé til þess fallinn að ógna eða hafa veruleg áhrif á líffræðilega fjölbreytni og er stofnuninni óheimilt að veita leyfin sé ástæða til að ætla að svo sé. Samkvæmt áhættumati sem fylgdi umsóknunum eru hverfandi líkur á að tegundirnar þrífist við íslenskar aðstæður. Tók sérfræðinganefnd um framandi lífverur undir það mat.

Auk sýningar og fræðslu verða köngulærnar mögulega notaðar við meðferð á ofsahræðslu á köngulóm (arachnophobia). Í umfjöllun sérfræðinganefndar kemur fram að útilokað sé að risaköngulær geti lifað af við náttúrulegar aðstæður á Íslandi, heldur geti þær einungis þrifist innan dyra og þá með umönnun, því þær þurfa hátt hitastig og raka auk vatns og fæðu. Tegundin myndi því ekki lifa af við íslenskar aðstæður ef svo færi að hún slyppi úr búri eða garðinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert