Óvíst um möguleika á heimkomu eftir páska

Tómlegt er um að litast í flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Tómlegt er um að litast í flugstöð Leifs Eiríkssonar. mbl.is/Eggert

Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hefur vakið athygli á því við Íslendinga sem staddir eru erlendis og hyggja á heimferð að nýta sér ferðir Icelandair frá London og Boston næstu daga, auk flugferða frá Stokkhólmi á morgun, þriðjudag, og frá Alicante á Spáni á miðvikudag.

Þetta segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins sem ber þá yfirskrift að óvíst sé um möguleika á heimkomu eftir páska. Bent er á að þessar ferðir séu samkvæmt samkomulagi sem íslensk stjórnvöld gerðu nýlega við Icelandair, og gildi að svo stöddu til 15. apríl.

„Flugsamgöngur munu ekki falla niður með öllu eftir 15. apríl, en enn er ekki ljóst hvernig þeim verður háttað,“ segir í bréfi borgaraþjónustunnar sem sent hefur verið þeim Íslendingum sem skráðir eru í gagnagrunn þjónustunnar og eru samkvæmt honum staddir erlendis.

Mörg félög þegar lagt flotanum

Í bréfinu kemur fram að aðrar ferðir en þær sem Icelandair býður upp á til Íslands gætu fallið niður, þótt þær virðist enn á áætlun samkvæmt bókunarsíðum flugfélaganna. Sama á við um annað millilandaflug.

„Hafi flug ítrekað verið fellt niður er það sterk vísbending um að svo verði einnig með flug sem er á áætlun næstu daga. Ástæðan er sú að mörg flugfélög hafa ekki getað fellt niður flug úr bókunarkerfum sínum nema með eins til tveggja sólarhringa fyrirvara.“

Í þessu samhengi er nefnt að ört hafi dregið úr framboði á áætlunarflugi og mörg flugfélög hafi þegar lagt flugflota sínum.

Engin sjálfkrafa framlenging á vegabréfsáritunum í Bandaríkjunum

Borgaraþjónustan hefur einnig vakið athygli á því við Íslendinga sem staddir eru í Bandaríkjunum að þeir sem hafa ekki lögmæta ástæðu til að framlengja dvöl sína í Bandaríkunum umfram það sem ESTA-ferðaheimild þeirra segir til um fái ekki sjálfkrafa framlengingu á sinni ESTA-áritun, og að þeir sem dvelji þar fram yfir gildistíma áritunarinnar megi búast við að sæta endurkomubanni til Bandaríkjanna.

„Eingöngu þeir sem hafa lögmæta ástæðu til að hafa ekki flýtt heimför, s.s. sjúkrahúsvist eða aðrar slíkar ófyrirsjáanlegar ástæður, geta fengið framlengingu,“ segir í orðsendingu borgaraþjónustunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert