Gríðarleg áhrif á „ósýnilega“ tæknifólkið

Starfsmaður hjá Exton á ferðinni með ljósabúnað í Laugardalshöll.
Starfsmaður hjá Exton á ferðinni með ljósabúnað í Laugardalshöll. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Tekjur helmings tæknifólks sem starfar sjálfstætt í miðlun og skapandi greinum dragast saman um 70-100% vegna beinna áhrifa samkomubanns stjórnvalda. Áhrif samkomubanns á afkomu þeirra fastráðnu eru líka gríðarmikil og alvarleg, samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Félag tæknifólks í rafiðnaði gerði um síðustu mánaðamót.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Helmingur fastráðinna býr við skert starfshlutfall og níu af hverjum tíu segja að það hafi mikla kjaraskerðingu í för með sér. Yfir 20% gera ráð fyrir uppsögnum á vinnustöðum sínum, að því er kemur fram í niðurstöðum könnunarinnar.

Á meðal tæknifólks í miðlun og skapandi greinum eru hljóðmenn og ljósamenn í leikhúsum, á tónleikum, við útsendingar frá kappleikjum og íþróttamótum, í kvikmyndagerð og á hvers kyns samkomum. Félagsmenn sinna líka forritun, kerfisstjórnun, vefumsjón og mörgu fleiru.

Allt í frosti og óvissu

Jakob Tryggvason, formaður Félags tæknifólks í rafiðnaði, segir að stjórn þess hafi sent félagsmönnum spurningalista til að fá áreiðanlegar upplýsingar um stöðuna. Ástand og horfur séu vægast sagt skuggalegar.

„Dæmi eru um fólk sem vann 50-60 tíma á viku í febrúar og mars en hefur alls ekkert við að vera nú þegar leikhúsin eru lokuð og aflýst hefur verið öllum tónleikum, árshátíðum, ráðstefnum og íþróttaviðburðum. Því miður er einfaldast að segja að allt sé í frosti og fullkominni óvissu með verkefni og tekjur fjölda félagsmanna okkar,“ segir Jakob í tilkynningunni.

„Margir höfðu vænst vinnu og tekna í ár við gerð sjónvarpsþátta og kvikmynda þar sem erlent fjármagn kæmi við sögu. Slík verkefni eru nú öll í biðstöðu og enginn veit hvað úr verður og þá hvenær. Hópur tæknifólks í skapandi greinum af ýmsu tagi er stór og stækkar ár frá ári. Hann er nánast ósýnilegur í störfum sínum en ómissandi við að miðla alls kyns efni á samkomum, í fjölmiðlum, með streymisveitum og á annan hátt. Þessi atvinnustarfsemi er tiltölulega ung og ég óttast að þessar ótrúlegu hamfarir á hefðbundnum vinnumarkaði okkar fólks leiði til þess að margir sjái ekki annan kost en að hverfa úr faggreinum sínum og snúa sér að einhverju öðru,“ bætir Jakob við.

Hann bætir við að stjórnvöld hafi gripið til tímabundinna ráðstafana á vinnumarkaði. Þær séu vissulega til bóta en hann óttist engu að síður mjög langtímaáhrif ástandsins.

Félag tæknifólks í rafiðnaði er næststærsta félagið í Rafiðnaðarsambandi Íslands. Ákveðið er að síðar á þessu ári sameinist það kjaradeild félags kvikmyndagerðarmanna og Félagi sýningarstjóra í kvikmyndahúsum. Sameining hefur verið samþykkt í öllum félögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert