Framhald efnahagsaðgerða kynnt í dag

Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins voru kynntar í Hörpu 21. …
Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins voru kynntar í Hörpu 21. mars. Nú er komið að næstu aðgerðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra boða til blaðamannafundar í dag um framhald efnahagsaðgerða vegna COVID-19.

Fundurinn verður í Safnahúsinu við Hverfisgötu og hefst hann klukkan 16. 

Hægt verður að fylgjast með fréttum af fundinum, sem og blaðamannafundinum í beinni,  hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka