Hraðhleðslustöðvar Tesla á N1 við þjóðveginn

Hinrik Örn, framkvæmdastjóri N1, á Tesla við Staðarskála, þar sem …
Hinrik Örn, framkvæmdastjóri N1, á Tesla við Staðarskála, þar sem fyrsta hraðhleðslustöð Tesla við þjóðveg 1 verður sett upp. Ljósmynd/Aðsend

N1 og Tesla hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér uppsetningu á Tesla hraðhleðslustöðvum á völdum N1 stöðvum við hringveginn. Þannig geta Tesla eigendur nú ferðast innanlands og hlaðið bíla sína við þjóðveg 1, að því er segir í tilkynningu.

Gert er ráð fyrir því að fyrsta stöðin verði komin í rekstur snemma sumars 2020.

„Tesla eigendur geta í sumar stoppað á völdum N1 þjónustustöðvum og fengið sér bolla af góðu kaffi eða gætt sér á hefðbundinni íslenskri kjötsúpu á meðan þeir hlaða bifreiðar sínar. Við stefnum að því að fyrsta Tesla hraðhleðslustöðin verði opnuð í Staðarskála og einnig er verið að skoða fleiri staðsetningar með því markmiði að dekka hringveginn,“ er haft eftir Hinriki Erni Bjarnasyni, framkvæmdastjóra N1.

 „Við hjá Tesla erum ánægð með að hafa náð samningi við N1 um að flýta fyrir uppsetningu á hraðhleðslustöðvum Tesla á Íslandi. Samningurinn við N1 mun hjálpa okkur að nýta hraðhleðslutækni okkar á völdum N1 stöðvum til hagsbóta fyrir Tesla eigendur,“ segir Even Sandvold Roland, talsmaður Tesla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert